Víða ófært á höfuðborgarsvæðinu

Allt er á kafi í snjó á höfuðborgarsvæðinu, eins og …
Allt er á kafi í snjó á höfuðborgarsvæðinu, eins og sjá má á þessari mynd. mbl.is/Árni Sæberg

Snjóað hefur mikið á höfuðborgarsvæðinu í nótt og því er mjög þungfært í umdæminu. Víða er ófært og á það ekki síst við um húsagötur. Ljóst er að tafir verða á umferð og aðeins þeir sem eru á mjög vel útbúnum bílum kunna að komast leiðar sinnar. Þeir sem eru á fólksbílum ættu að halda sig heima og ekki freista þess að leggja af stað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

„Snjómokstur er þegar hafinn á höfuðborgarsvæðinu en ljóst er að hann mun taka töluverðan tíma. Aðgerðastjórn lögreglunnar í Skógarhlíð hefur verið virkjuð sem og björgunarsveitirnar. Við ítrekum að fólk haldi sig heima því annars er hætt við að hinir sömu lendi í miklum vandræðum í umferðinni,“ segir í tilkynningunni. 

Þessi mynd var tekin í Reykjavík klukkan hálfsex í morgun.
Þessi mynd var tekin í Reykjavík klukkan hálfsex í morgun. Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert