Þrír voru fluttir alvarlega slasaðir á Landspítalann í gærkvöldi eftir umferðarslys á Reykjanesbraut við Brunnhóla. Alls voru fjórir í bifreiðunum tveimur sem rákust saman, allt erlendir ferðamenn. Banaslys varð á þessum stað 21. febrúar.
Loka þurfti Reykjanesbrautinni vegna slyssins klukkan 20:19 og var hún ekki opnuð á ný fyrr en langt var liðið á ellefta tímann í gærkvöldi. Langar bílaraðir höfðu þá myndast beggja vegna.