Ferðamenn án belta

Betra er að bílbeltin séu spennt þegar svona fer.
Betra er að bílbeltin séu spennt þegar svona fer. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Ferðamönnum sem aka um Ísland hefur stórfjölgað og samfara því hefur fjöldi umferðarslysa þeirra margfaldast. Samkvæmt upplýsingum Samtaka ferðaþjónustunnar er fjölgun ferðamanna á Íslandi áætluð 20-25% á ári.

Í nýlegum skýrslum Rannsóknarnefndar samgönguslysa á tveimur banaslysum erlendra ferðamanna 2015 kemur í ljós að bílbelti voru ekki notuð. Í einu af þeim slysum sem átti sér stað 30. ágúst 2015 var límmiði í bílnum á hanskahólfinu þar sem bent var á mikilvægi þess að spenna bílbeltin. Konan sem lést var beltislaus farþegi í aftursæti.

„Slys erlendra ferðamanna hafa verið viðloðandi alveg frá því ég hóf störf hérna árið 2000 og þá sérstaklega slæm notkun á bílbeltum í aftursætum,“ segir Ágúst Mogensen, afbrotafræðingur og rannsóknarstjóri umferðarsviðs hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa. „Þetta hefur mikið verið þessi hefðbundnu tilvik þar sem ökumenn missa stjórn á bílnum á vegi og velta,“ segir Ágúst.

Spurður um fræðslu fyrir ferðamenn segir hann það mikið reynt. „Það eru settir miðar á stýri, auglýsingar og bæklingar en það er mismunandi hvernig tekst til og hversu mikið er lesið af því. Þetta tengist líka menningunni í þeim löndum sem fólk kemur frá, í sumum löndum er ekki menning fyrir því að nota bílbelti.“

Stærri viðvörunarlímmiðar

Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa á 16 banaslysum í umferðinni 2015 kemur meðal annars fram að í fimm þessara slysa létust erlendir ferðamenn og líkt og fyrri ár var áberandi hve bílbeltanotkun er ábótavant meðal þeirra.

Að mati RNSA þurfa viðvörunarlímmiðar að vera stærri og helst einnig sýnilegir farþegum í aftursæti. Notkun bílbelta í aftursæti er verulega ábótavant í slysum ferðamanna sem RNSA hefur rannsakað. mhj@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert