Formlegri leit að ljúka

Artur Jarmoszko.
Artur Jarmoszko.

Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir að formlegri leit að Artur Jarmosz­ko, sem hef­ur verið saknað frá mánaðamót­um, sé að ljúka. Hugsanlega verði leitað með drónum í dag en það var ekki hægt í gær vegna veðurs.

Meira en 80 björgunarsveitarmenn leituðu að Artur í gær en leitað var meðfram strand­lengj­unni frá Gróttu að Naut­hóls­vík, við Kópa­vogs­höfn og Álfta­nes. Guðmundur segir að nú verði unnið eftir ábendingum sem kunna að berast.

Við munum væntanlega ekki kalla út sveit nema við fáum einhverjar nánari vísbendingar,“ segir Guðmundur en lögreglan mun áfram rannsaka málið og reyna að upplýsa hvað varð um Artur. Síðast er vitað um ferðir hans rétt fyr­ir miðnætti 1. mars en þá sést hann á ör­ygg­is­mynda­vél­um í Lækj­ar­götu.

Lögreglan mun funda vegna málsins á morgun en enn er unnið eftir því að ekkert saknæmt hafi átt sér stað. 

Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir Art­ur eru beðnir um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 444-1000 eða í gegn­um einka­skila­boð á Face­book-síðu lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert