Misjafnar aðstæður á vegum

Snjóþekja eða hálka er víða á vegum en annars staðar …
Snjóþekja eða hálka er víða á vegum en annars staðar autt. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Vegagerðin vekur athygli vegfarenda á því að verulegur munur getur verið á aðstæðum til aksturs á láglendi og lægri fjallvegum og á þeim hærri. Þetta kemur fram í ábendingum veðurfræðings í tilkynningu frá Vegagerðinni. Einkum á þetta við um Steingrímsfjarðarheiði og Öxnadalsheiði.

„Hvessir í kvöld, en á leiðinni norður í land veður að mestu rigning eða slydda en dregið getur í skafla í kvöld á Öxnadalsheiði. Á Steingrímsfjarðarheiði má gera ráð fyrir snjókomu og dimmum skafrenningi frá því upp úr kl. 16 til 17 og fram undir miðnætti,“ segir meðal annars í tilkynningunni.  

Þá eru vegir á Suður- og Vesturlandi að mestu auðir, hálkublettir, hálka eða snjóþekja er á fjallvegum á Vestfjörðum en autt á láglendi. Á Norðurlandi vestra er sums staðar nokkur hálka á útvegum, snjóþekja er á Öxnadalsheiði og hálka í Öxnadal. Þá má búast við hálkublettum á Víkurskarði og Mývatnsöræfum. Snjóþekja er á Vopnafjarðarheiði og hálka á Möðrudalsöræfum en aðalleiðir á Austurlandi eru þó víðast auðar eða aðeins með hálkublettum. Þá er vegur auður með suðausturströndinni.

„Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Loks er minnt á að vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum en áætluð verklok við brúnna eru júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert