Samið við WOW air um rekstur hjólaleigu

Hjólaleigur sem þessar þekkjast víða erlendis.
Hjólaleigur sem þessar þekkjast víða erlendis. AFP

Reykjavíkurborg hefur samþykkt samning við WOW air um uppsetningu hjólaleigu í Reykjavík í sumar. Settar verða upp átta hjólastöðvar í Reykjavík en sambærilegar hjólaleigustöðvar þekkjast víða í borgum erlendis. Borgin auglýsti í fyrra eftir hugmyndum og áhugasömum aðilum til að koma á fót og reka hjólaleigu í Reykjavík.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri greindi frá því í Facebook-færslu í gær að búið væri að semja við WOW air um framkvæmd verkefnisins.

„Þetta er bara verkefni sem að við erum búin að vera að vinna að og stefnum á að klára fyrir sumarið,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, í samtali við mbl.is. „Þetta verða svona átta stöðvar og fólk getur einmitt leigt á einum stað og skilað á öðrum stað. Þetta þekkist í mjög mörgum borgum í dag,“ segir Svanhvít.

Staðsetning stöðvanna enn óljós

Hún gerir ráð fyrir að um hundrað hjól verði í útleigu í sumar en ennþá á eftir að koma í ljós hvar nákvæmlega hjólastöðvarnar verða staðsettar og hvað það mun kosta að leigja hjól. Þá liggur ekki endanlega fyrri hvenær stöðvarnar muni opna, en stefnt er að því að það verði áður en sumarið gengur í garð. „Þetta er bara á byrjunarstigi en samt komið svona ágætlega af stað,“ segir Svanhvít.

Samkvæmt auglýsingu borgarinnar um verkefnið í fyrra verður aðkoma borg­ar­inn­ar fyrst og fremst fólg­in í því að skapa aðstöðu og leggja til borg­ar­land, en sér­hæfðum aðilum er síðan látið eft­ir að sjá um upp­setn­ingu og all­an rekst­ur. Þá sé til­gang­ur hjóla­leiga að veita fólki aðgang að hjóli fyr­ir ferðir sín­ar inn­an borg­ar­mark­anna og styðja þannig við mark­mið um vist­væn­ar sam­göng­ur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert