Fjórir menn handteknir

Ránið var í Kauptúni.
Ránið var í Kauptúni. Kort

Fjórir menn voru handteknir í íbúð á höfuðborgarsvæðinu nú rétt fyrir klukkan 19 í tengslum við rannsókn á vopnuðu ráni í Garðabæ fyrr í dag. Í íbúðinni fundust fíkniefni sem og skotvopn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 

Eins og greint var frá fyrr í kvöld fékk lögreglan tilkynningu rétt fyrir klukkan þrjú í dag um að tveir menn hefðu framið vopnað rán á bíla­stæði í Kaup­túni Garðabæ.

Í til­kynn­ing­unni kom fram að menn­irn­ir hefðu verið vopnaðir skot­vopni. Lög­regl­an, ásamt sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra, brá skjótt við og meðal ann­ars vopnaðist hluti lög­regluliðsins vegna at­viks­ins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert