Skora á ráðherra að friða Eyjafjörð

Áformin eru sögð geta spillt náttúrugæðum fjarðarins.
Áformin eru sögð geta spillt náttúrugæðum fjarðarins. mbl.is/Árni Sæberg

Hagsmunaaðilar í veiði, hvalaskoðun, útivist og sjómennsku hafa skorað á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að friða Eyjafjörð fyrir sjókvíaeldi á laxi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Í áskoruninni segir meðal annars: 

„Við undirrituð tökum heilshugar undir efasemdir þínar um fyrirhugað sjókvíaeldi á laxi í Eyjafirði. Einnig lýsum við yfir ánægju með ummæli þín þar sem þú segist vilja gæta varúðar og verja náttúruna gegn umhverfisspjöllum af völdum laxeldis í sjó.

Við leggjumst alfarið gegn sjókvíaeldi á laxi í Eyjafirði. Fyrirhugað risaeldi á 10.000 tonnum af laxi myndi spilla hreinni ímynd fjarðarins, skaða hagsmuni ferðaþjónustu, valda smábátaeigendum búsifjum, bitna harkalega á villtum Atlantshafslaxi sem gengur í ár á svæðinu og að öllum líkindum eyða sjóbleikjustofnum í Eyjafirði.“

Þá er nefnt að atvinnuuppbygging í Eyjafirði sé ein helstu rök með áðurnefndum laxeldisáformum.

„Ljóst er að þessi áform geta spillt náttúrugæðum fjarðarins og stórspillt möguleikum fjölda atvinnugreina sem stundaðar eru í Eyjafirði og geta því á engan hátt verið innlegg í umræðu um uppbyggingu atvinnulífs fjarðarins og nærbyggða.“

Skorað er á ráðherra að friða Eyjafjörð fyrir öllu sjókvíaeldi á norskum laxi, á grundvelli laga um náttúruvernd og laga um verndun villtra laxa og silungsstofna.

Undir þetta rita hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassador, Bergmenn fjallaleiðsögumenn, Klettur félag smábátaeigenda og veiðifélög Svarfaðardalsár, Hörgár, Eyjafjarðarár, Fnjóskár, Laxár í Aðaldal, Skjálfandafljóts, auk Stangveiðifélagsins Flúða, Flugunnar á Akureyri og Stangveiðifélags Akureyrar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert