Málið var pínt í gegn á sínum tíma

Páll Magnússon.
Páll Magnússon. mbl.is/Rax

„Þetta er sennilega vitlausasta framkvæmd í samgöngumálum sem hefur verið gerð,“ sagði Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þegar rætt var um Vaðlaheiðargöng í Silfrinu á RÚV í hádeginu.

„Bara viðbótin er miklu hærri en kostnaður við Landeyjahöfn,“ bætti Páll við en komið hefur fram að ríkissjóður lánar Vaðlaheiðargöng­um 4,7 millj­arða til að ljúka ganga­gerðinni.

Upp­haf­leg­ur samn­ing­ur við Vaðlaheiðargöng hafi kveðið á um lán til að fjár­magna ganga­fram­kvæmd­irn­ar fyr­ir allt að 8.700 m.kr. miðað við verðlag í lok árs 2011. Taf­ir við fram­kvæmd, vegna erfiðra aðstæðna hafi hins veg­ar valdið mikl­um kostnaðar­auka.

„Þessi framkvæmd fer sennilega langleiðina í 20 milljarða. Það er búið að eyða 15-18 milljörðum og það verður að ljúka henni,“ sagði Páll.

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafnsson mbl.is/Ómar Óskarsson

Blaðamaðurinn Kristinn Hrafnsson sagði framkvæmdina dæmi um kjördæmapot. „Þetta er makalaus framkvæmd. Menn voru að búa eitthvað til og þetta voru bara bulltölur,“ sagði Kristinn og bætti við að það þyrfti að losa sig við einkafyrirtækið, en verkefnið er einkaframkvæmd í samstarfi við ríkið, og horfast í augu við staðreyndir.

„Þetta var pínt í gegn á pólitískum forsendum og var kjördæmapot. Steingrímur J. Sigfússon og Kristján Möller eiga þetta að mestu leyti skuldlaust. Nú er það hlutskipti Sjálfstæðismanna að losa þá úr snörunni,“ sagði Kristinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert