Erfitt og tímafrekt verkefni

Lækurinn á upptök sín við Bullaugu, sunnan Vesturlandsvegar. Í lækinn …
Lækurinn á upptök sín við Bullaugu, sunnan Vesturlandsvegar. Í lækinn rennur svo ofanvatn úr Grafarholti og ofarlega austast úr Hálsahverfi. Þaðan rennur vatnið um um leiðslur, rör og opna skurði og sameinast læknum neðan við Vesturlandsveg og Stórhöfða og rennur síðan niður í Grafarvoginn sjálfan. Kort/mbl.is

„Það er ekki búið að finna neitt út úr þessu,“ segir Rósa Magnúsdóttir, umhverfisstjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, í samtali við mbl.is. „Við bara fylgjumst með því hvernig þetta fer, það er ekkert annað sem við getum gert í sjálfu sér.“

Þó nokkur olíumengun er enn sjáanleg í neðanverðum Grafarlæk og má sjá brák í fjörum Grafarvogs meðfram norðurströndinni. Mikil aukning varð á sýnilegri mengun í dag og er það talið vera afleiðing þeirrar miklu úrkomu sem nú er. Fólki er ekki talin stafa hætta af olíumenguninni en nokkur sjón- og lyktarmengun er á svæðinu. 

Fulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og Veitum fylgjast áfram með aðstæðum vegna olíumengunar í Grafarlæk í Grafarvogi. Enn liggur ekki fyrir hvaðan mengunin hefur borist í lækinn en verið er að skoða brunna í nágrenni við lækinn í von um að hægt verði að komast á sporið.

Rósa segir koma til greina að mengun sé hætt að berast í lækinn og að olíuslikju sem enn sé í læknum muni skola smátt og smátt í burtu. Ekkert liggur þó fyrir enn þá og munu fulltrúar heilbrigðiseftirlitsins fara aftur í dag og kanna ástand lækjarins.

Í lækinn rennur ofanvatn úr Grafarholti og ofarlega austast úr Hálsahverfi. Þaðan rennur vatnið um um leiðslur, rör og opna skurði og verður loks að læk neðan við Vesturlandsveg og Stórhöfða sem síðan rennur niður í Grafarvoginn sjálfan.

Enn liggur ekki ljóst fyrir hvaðan olíumengun barst í Grafarlæk …
Enn liggur ekki ljóst fyrir hvaðan olíumengun barst í Grafarlæk í Grafarvogi. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við höldum að það sé kannski líklegra heldur en að það sé enn þá að berast í ofanvatnið en á meðan þetta er að hreinsast þá getum við búist við smá slikju á vatninu,“ segir Rósa, spurð hvort merki séu um að olía sé hætt að berast í lækinn. „En við að sjálfsögðu fylgjumst með þessu áfram,“ segir Rósa.

Stórt kerfi og mörg niðurföll

Veitur hafa verið heilbrigðiseftirlitinu innan handar og aðstoða við að rekja uppruna olíumengunarinnar.  

„Það sem við gerum þegar við erum að aðstoða heilbrigðiseftirlitið í að reyna að finna upptök svona þá náttúrulega leggjumst við bara yfir kort af fráveitukerfinu og svo er farið kerfisbundið í brunnana og athugað hvort við sjáum einhver ummerki í þeim. Ef við finnum brunn þar sem eru ummerki um mengun þá sjáum við á kortinu frá hvaða svæði hann er að taka við og þá getum við kannski þrengt svæðið,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, í samtali við mbl.is.

Hún segir verkefnið vera erfitt og tímafrekt en að svo stöddu hafi engin ummerki mengunar fundist. Þá komi til greina að um sé að ræða einangrað tilfelli, mengunin sé nokkurra daga gömul og olía sé ef til vill hætt að berast í lækinn. „Það er bara ekki vitað enn þá en það er tímafrekt að komast að svona upptökum og þetta er stórt kerfi og mörg niðurföll þaðan sem þetta gæti komið,“ segir Ólöf.

Berst úr regnvatnsrás

Í tilkynningu sem barst frá Heilbrigðiseftirlitinu fyrir skömmu kemur fram að ljóst sé að olíumengun berst í lækinn úr regnvatnsrás og við úrkomuna aukist flæði gegnum rásina og því líklegt að olían sé að skolast út á meiri hraða en áður. Ekki er hægt að útiloka að enn komi mengun frá uppsprettu en sennilegra er um útskolun eldri mengunar frá því á föstudag og laugardag sé að ræða.

Regnvatnsrásin sem liggur út í Grafarlæk tekur við ofanvatni af stóru svæði. Mögulegt er að mengunin sé vegna bilaðrar olíuskilju eða rangra tenginga. Þess er óskað að aðilar á þessum svæðum sem meðhöndla olíu athugi hvort olíuskiljur séu ekki í lagi eða hvort mögulegt sé að olíumengun sé að berast með einhverju móti í niðurföll. Allar slíkar upplýsingar flýta fyrir rannsókninni á uppruna mengunarinnar að því er segir í tilkynningunni sem lesa má hér að neðan.

Vandlega fylgst með

„Í dag fóru starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og starfsmenn frá skrifstofu umhverfisgæða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur ásamt sérfræðingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á vettvang, en slökkviliðið er viðbragðsaðili þegar kemur að mengunarslysum. Að mati slökkviliðsins virðist ekki um mikla olíumengun að ræða en hún er allútbreidd á svæðinu og er áberandi og er greinilega enn að berast úr regnvatnsrásinni. Ræddir voru möguleikar á að reyna að hefta útbreiðslu olíunnar þannig að hún berist ekki með Grafarlæk út í fjörur Grafarvogs en til er búnaður sem getur gripið olíu sem virkar best þegar olían er í frekar miklu magni og staðbundin. Var það metið svo að tilraunir til að grípa olíuna væru líklegar til að bera lítinn árangur því olían sem flýtur á yfirborði lækjarins er á þessu stigi þunn og útbreidd. Enn er verið að skoða hvort raunhæfir hreinsunarmöguleikar séu í stöðunni en ef ekkert er hægt að gera mun olían brotna niður á náttúrulegan hátt en það getur tekið tíma.

Fólki er ekki talin stafa hætta af olíumenguninni en nokkur sjón- og lyktarmengun er á svæðinu og þar sem olía hefur sest í gróður getur hún borist í fatnað. Grafarvogur er mikilvægt náttúrusvæði og þar er auðugt fuglalíf og hafa starfsmenn skrifstofu umhverfisgæða gengið fjörurnar í Grafarvogi og lagt mat á útbreiðslu og þykkt olíunnar. Greinileg svört skán er á grösugum fitjum norðarlega í voginum og á þangi og grjóti. Lítil mengun sást við suðurströndina. Ekki sást til fugla sem virtust hafa orðið fyrir olíumengun í athugunum í gær og í dag en áfram verður fylgst með áhrifum mengunarinnar á fuglalífið. Ef vegfarendur sjá fugla sem virðast illa haldnir vegna olíumengunar er mælt með því að láta starfsfólk skrifstofu umhverfisgæða hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar vita.

Fylgst verður vandlega með menguninni áfram og metið hvort tilefni er til frekari aðgerða eða athugana með tilliti til áhrifa á lífríki.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert