Maðurinn erlendur hælisleitandi

Maðurinn sem féll í Gullfoss er erlendur hælisleitandi sem kom til Íslands fyrir nokkru síðan. Ekkert bendir til þess að þetta atvik hafi orðið með saknæmum hætti.

Þetta staðfestir lögreglan á Suðurlandi frá á Facebook-síðu sinni. Greint var frá því að maður hefði fallið í Gull­foss rétt fyr­ir klukk­an fimm í gær. Hann virðist hafa verið einn á ferð en sér­stak­lega er horft til bíls á bíla­stæðinu við Gull­foss sem talið er að maður­inn hafi komið í.

Í færslu lögreglu segir að rætt hafi verið við fjölmarga aðila, bæði sem voru á staðnum og hafi nokkrir sjónarvottar gefið greinargóða lýsingu á þeim er fór niður fossinn. Hann sást á tveimur stöðum frá útsýnispöllum sem eru við fossinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert