Vaxandi suðaustanátt verður á morgun, 8-15 metrar á sekúndu seinnipartinn. Hvassast verður við suðvesturströndina og á norðanverðu Snæfellsnesi, þar sem búast má við snörpum hviðum.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar.
Skýjað og dálítil væta verður þá sunnan- og vestanlands, en birtir víða til norðan heiða. Hiti verður 10 til 20 stig, en hægari vindur og léttskýjað norðaustanlands og hiti að 24 stigum.