Um helgina taka að rísa risavaxnar tjaldbúðir á Úlfljótsvatni vegna alþjóðlegs skátamóts sem þar fer fram á næstunni. Meira en 230 tjöld verða sett upp fyrir þá 4.000 skáta og 1.000 sjálfboðaliða sem mæta á mótið. Að auki koma skátarnir með sín eigin íverutjöld. Í fréttatilkynningu segir að um sé að ræða stærstu tjaldbúðir Íslandssögunnar.
„Við ætlum að byggja upp alþjóðlegt samfélag á Úlfljótsvatni sem verður tíunda stærsta ”sveitarfélag” landsins þessa mótsdaga,“ er haft eftir Hermanni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Bandalags íslenskra skáta, í fréttatilkynningunni. Allur tjaldbúnaður mótsins er um 30.000 fermetrar og jafnast á við heildarfermetra Egilshallar.
Samfélagið mun byggjast á 10 manna flokkum með hámarki tveimur þátttakendum frá hverri þjóð. Þátttakendur koma frá 106 löndum og eru á aldrinum 18-25 ára. Hermann segir að ekki sé hægt að treysta á íslenska veðráttu og því verði að vera við öllu búinn. Í þjónustutjöldunum verða 120 eldavélar til þess að elda mat í 400 pottum. Sjálfbærni er lykilorð á mótinu og munu skátarnir elda sér mat sinn sjálfir. Má því ætla að þar muni blandast saman margskonar ilmur af mat frá öllum heimshornum.
Skátamótið hefst í Laugardalshöll á þriðjudagsmorguninn 25. júlí en síðan dreifast skátarnir víða um land og munu m.a. stunda sjálfboðastörf á 11 stöðum. Fjóra síðustu daga mótsins dvelur allur hópurinn, alls um 5000 manns, í tjaldbúðum á Úlfljótsvatni.
„Það krefst mikils undirbúnings að koma þessum stóru tjaldbúðum upp á Úlfljótsvatni,” segir Hermann. Hann segir að undirbúningur á svæðinu standi nú sem hæst en mennta- og menningarmálaráðuneytið lagði um 40 milljónir króna til verksins. Þessi vinna mun nýtast íslenskum skátum og þeim fjölskyldum sem nýta sér tjaldsvæðið um ókomna tíð, segir framkvæmdastjórinn.