2.300 Pólverjar og Litháar til Íslands

Fjölmargir hafa flutt til Íslands á undanförnum mánuðum enda mikil …
Fjölmargir hafa flutt til Íslands á undanförnum mánuðum enda mikil eftirspurn eftir vinnuafli. mbl.is/Ómar Óskarsson

Alls fluttust 1.670 Pólverjar til landsins af alls 3.720 erlendum innflytjendum á öðrum ársfjórðungi. 490 Litháar fluttu til Íslands á tímabilinu apríl til júní. Í lok 2. ársfjórðungs bjuggu 34.460  erlendir ríkisborgarar á Íslandi. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Í lok 2. ársfjórðungs 2017 bjuggu 343.960 manns á Íslandi, 174.810 karlar og 169.150 konur. Landsmönnum fjölgaði um 3.850 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 219.900 manns.

Þúsund fæddust en 550 létust

Á 2. ársfjórðungi fæddust 1.000 börn, en 550 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 3.400 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 270 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 3.130 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 130 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 270 íslenskir ríkisborgarar af 430 alls. Af þeim 590 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 150 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (170), Noregi (190) og Svíþjóð (110), samtals 480 manns af 710. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert