Ók á bíl og hljóp út í móa

Nokkuð var um umferðaróhöpp og í sumum tilvikum afstungur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Ekið var á bifreið á gatnamótum Reykjanesbrautar og Aðalgötu, og stakk sá er það gerði af. Skömmu síðar fann lögreglan bifreið hans úti í vegkanti. Hafði ökumaðurinn yfirgefið hana þar og tekið sprettinn út í móa. Lögreglumenn fundu hann, handtóku og færðu á lögreglustöð. Skömmu síðar var annar, sem verið hafði farþegi í bílnum, einnig handtekinn. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum og voru bæði hann og farþeginn grunaðir um fíkniefnaneyslu.

Þá var sendiferðabíl ekið á töluverðum hraða á vegrið á Reykjanesbraut, þannig að það skemmdist nokkuð og bíllinn enn meir. Ökumaður ók af vettvangi.

Ökumaður bifhjóls missti stjórn á því þegar hann var að aka út úr  hringtorgi. Við það flaug hann fram af hjólinu. Í ljós kom að hann hafði ekki réttindi til að aka því.

Loks fór bifreið nokkrar veltur eftir að ökumaður hans hafði misst stjórn á honum á Garðvegi.

Ekki urðu alvarleg slys á fólki í þessum óhöppum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert