Eru efins um þingmeirihluta

Svo virðist sem létt hafi verið yfir þingheimi á Alþingi …
Svo virðist sem létt hafi verið yfir þingheimi á Alþingi í fyrradag þegar Alþingi kom saman á nýjan leik. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins lýsa ákveðnum efasemdum í garð fyrirhugaðra skattahækkana í fjárlagafrumvarpi Benedikts Jóhannessonar fjármálaráðherra, einkum í garð hækkana á áfengisgjaldi og bensín- og dísilgjaldi.

Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, segir að fjárlagafrumvarpið snúist ekki bara um útgjöld. Ræða þurfi hvaða byrðar verið sé að setja á einstaklinga og fyrirtæki í formi skattahækkana.

„Þær fyrirætlanir sem koma fram í fjárlagafrumvarpinu varðandi tekjuöflun ríkissjóðs og breytingar á sköttum og gjöldum hér til hækkunar eru með þeim hætti að þær hljóta að taka breytingum í meðförum þingsins,“ segir Óli Björn í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að ekki skipti máli hvort rætt sé um fyrirhugaða hækkun á áfengisgjaldinu, hækkun á dísilgjaldinu eða aðrar hækkanir. „Það kæmi mér verulega á óvart ef það væri þingmeirihluti fyrir slíkum breytingum,“ segir Óli Björn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert