Einn var fluttur á slysadeild með minni háttar meiðsl eftir árekstur við Kópavogslæk seint í gærkvöldi.
Maður sem er grunaður um líkamsárás er vistaður í fangaklefa á Hverfisgötu en hann hafði veist að manni í miðborginni um þrjúleytið í nótt. Annar var fluttur á lögreglustöðina um tvöleytið í nótt og gistir þar einnig í fangaklefa vegna þess hve ölvaður hann var undir stýri.
Sá þriðji fékk aftur á móti gistingu í fangaklefa að eigin ósk þar sem hann átti ekki í önnur hús að venda.