Opnað fyrir ferfættum matargestum

Frá og með 28. október nk. verður eigendum eða rekstraraðilum veitingastaða heimilt að leyfa gestum að koma með hunda og ketti inn á veitingastaði, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Heimildin gildir þó hvorki um veitingastaði né mötuneyti þar sem mæting er ekki valfrjáls og á stöðum þar sem fólki er gert að sækja þjónustu.

Þá gildir heimildin ekki þar sem aðstaða veitingastaðar er að einhverju leyti sameiginleg með annarri starfsemi eða á stað þar sem óheimilt er að hleypa gæludýrum inn.

Þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins en Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, tísti mynd af reglugerðinni fyrr í dag.

Gert er ráð fyrir að þeir rekstraraðilar veitingastaða sem nýti sér þessa heimild tilkynni það til hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar og auglýsi það jafnframt á áberandi hátt á húsnæðinu sjálfu utan dyra sem innan og á vef hlutaðeigandi fyrirtækis. Sú skylda mun einnig hvíla á rekstraraðilum að tryggja að hundar og kettir séu einungis í veitingasölum veitingastaða og ekki þar sem matvæli eru tilreidd, meðhöndluð eða geymd,“ segir í fréttinni á vef Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert