Sendir misvísandi skilaboð með dómum sínum

Davíð Þór Björgvinsson segir Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) senda misvísandi skilaboð …
Davíð Þór Björgvinsson segir Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) senda misvísandi skilaboð með dómum sínum í tjáningarfrelsis- og ærumeiðingarmálum. mbl.is/RAX

Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) sendir misvísandi skilaboð með dómum sínum í tjáningarfrelsis- og ærumeiðingarmálum að mati Davíðs Þórs Björgvinssonar, fyrrverandi dómara við Mannréttindadómstólinn. Þetta segir Davíð Þór, sem er nýskipaður dómari við Landsrétt, í pistli á vefsíðu sinni.

Tilefni pistilsins er nýlegur dómur Mannréttindadómstólsins sem úrskurðaði að íslenska ríkið hefði gerst brotlegt gegn Agli Einarssyni er það sýknaði bloggara af meiðyrðakröfu Egils vegna instragramfærslu. Segir Davíð Þór hætt við að niðurstaðan virki letjandi á íslenska dómara, sem vilji reyna að dæma í samræmi við fordæmi Mannréttindadómstólsins, en sem séu þó vafalaust einnig ósáttir við dóminn.

Hæsta­réttur og héraðsdómur höfðu sýknað Inga Kristjáni Sig­ur­mars­syni í meiðyrðamáli sem Egill höfðaði gegn honum vegna ókvæðisorða sem Ingi Kristján teiknaði á mynd af Agli af tímaritsforsíðu og birti á Instagram. Teiknaði hann kross á hvolfi á enni Egils, skrifaði „aum­ingi“ þvert yfir and­lit hans og „fuck you rap­ist bast­ard“ sem mynda­texta og birti ljós­mynd­ina þannig breytta á In­sta­gram, 22. nóv­em­ber 2012.  

Áður hafði sak­sókn­ari fallið frá því að ákæra Egil fyr­ir nauðgun og önn­ur kyn­ferðis­brot.

Verði að þola hvassari umræðu

Seg­ir í úr­sk­urði Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins að með þessu hafi verið brotið á stjórn­ar­skrár­vörðum rétti Eg­ils til friðhelgi einka­lífs.Tveir dómarar við réttinn skiluðu þó sératkvæði. Seg­ir ann­ar þeirra hinn ákærða vera að bregðast við viðtal­inu í tíma­rit­inu sem mynd­in af Agli var fram á, en hinn sagði um­deild og ögr­andi um­mæli Eg­ils, sem og þá staðreynd að hann sé þekkt­ur ein­stak­ling­ur breyta mörk­un­um.

Segir Davíð Þór að í dómi Mannréttindadómstólsins sé talið að Egill, hvort heldur undir eigin nafni eða „listamannsnafninu Gillzenegger (Gillz)“, sé þekkt persóna. Hann verði þannig, sem og vegna eigin þátttöku í almennri umræðu um ásakanir á hendur sér um kynferðislegt ofbeldi, að þola hvassari umfjöllun í sinn garð en ella. Þá fjalli dómstóllinn um hvort myndbirtingin og textinn feli í sér gildisdóm eða staðhæfingu um staðreynd.

„Þetta síðastnefnda er kjarni málsins, þ.e. hvort setningin „fuck you rapist bastard“ fæli í sér staðhæfingu um staðreynd, eða hvort um gildisdóm væri að ræða. Þessi greinarmunur skiptir talsverðu máli, því ef um er að ræða staðhæfingu um staðreynd er gerð ríkari krafa um að hún sé studd við gögn sem sanngjarnt er að sá sem viðhefur ummæli geti reitt sig á, þótt ekki sé farið fram á fulla sönnun. Ef um gildisdóm er að ræða þarf ekki að sanna slíkan dóm, þótt krafa sé gerð um að tjáningin styðjist við „einhver“ gögn sem gefi tilefni til hennar,“ segir Davíð Þór.

Viðurkenndi svigrúm en sá samt ástæðu til endurskoðunar

Meirihluti Hæstaréttar hafi talið að um „gildisdóm“ væri að ræða og að skoða yrði ummælin í víðara samhengi þeirrar umræðu sem Egill hefði staðið fyrir á opinberum vettvangi. Hann hefði kallað þessi viðbrögð yfir sig og yrði að þola þau. Mannréttindadómstóllinn hafi viðurkennt svigrúm Hæstaréttar til mats um þetta atriði, en engu að síður séð ástæðu til að endurskoða það. „Í því efni lagði MDE áherslu á að orðið nauðgari („rapist“) lýsti í raun hlutlægum aðstæðum og ef nákvæmlega væri skoðað í hvaða röð atburðir gerðust hefði Hæstiréttur ekki haft nægilega rík rök, þrátt fyrir að ummælin væru þáttur í óvæginni umræðu, til að meta ummæli Inga Kristjáns sem gildisdóm. Frekar væri um að ræða staðhæfingu um staðreynd sem enginn grundvöllur væri fyrir. Íslenska ríkið hefði því, með dómi Hæstaréttar, brugðist skyldu sinni til að vernda einkalíf og æru Egils og með því brotið gegn 8. gr. sáttmálans.“

Davíð Þór ræðir einnig sératkvæði dómaranna tveggja. „Fyrst Paul Lemmens frá Belgíu, en inntakið í sératkvæði hans er að meirihlutinn hafi brugðist í því að virða svigrúm Hæstaréttar til mats á því hvort um væri að ræða gildisdóm eða staðhæfingu um staðreynd. Mat Hæstaréttar væri stutt viðeigandi rökum og væri skynsamlegt og sanngjarnt og ekki næg ástæða til að endurskoða það. Í sératkvæði Stéphanie Mourou-Vikström frá Mónakó er m.a. lögð áhersla á fyrri framkomu Egils í opinberri umræðu sem hefðu lotið mjög að kynfrelsi kvenna og með henni hefði hann kallað yfir sig hvöss ummæli í sinn garð. Hæstiréttur hefði með réttu mátt meta þýðingu þeirra á þann hátt sem gert var. Þau töldu bæði að sýkna bæri íslenska ríkið.“

Sératkvæðin hafi talsvert til síns máls, þ.e. að mat Hæstaréttar sé ígrundað og styðjist við viðeigandi rök sem Mannréttindadómstóllinn hafi vel mátt una við.  

Gerir landsdómstólum erfitt að fullnægja kröfunum

„Ef horft er til allra þeirra dóma sem fallið hafa í tjáningarfrelsis- og ærumeiðingarmálum gegn Íslandi síðustu árin má með nokkrum rétti halda því fram að skilaboðin frá MDE séu nokkuð misvísandi og til þess fallin að gera  landsdómstólum fremur erfitt fyrir um að fullnægja þeim kröfum sem telja má að í dómaframkvæmd MDE felist, þrátt fyrir vilja til þess,“ segir Davíð Þór.

„Erfitt getur verið að átta sig á hvenær og á hvaða grundvelli MDE unir mati landsdómstóla og hvenær ekki. Niðurstaða Hæstaréttar um að líta bæri á tjáninguna sem gildisdóm er, þegar á allt er litið, ágætlega rökstudd og sannfærandi og innan þess svigrúms til mats sem Hæstiréttur mátti með sanngirni ætla að hann hefði til þess að meta þetta atriði, einkum þegar horft er til þess hvernig dómaframkvæmd MDE hefur þróast síðustu ár. Með sanngirni má segja að dómur Hæstaréttar hafi falið í sér raunverulega og rökstudda tilraun til að taka mið af þeim sjónarmiðum sem MDE hefur þróað, einkum í málum sem varða tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs. En allt kom það fyrir ekki að þessu sinni. Þrátt fyrir þetta bakslag verður engu að síður að hvetja íslenska dómstóla til að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið síðustu misseri um að taka í vaxandi mæli mið af dómaframkvæmd MDE þar sem við á. Hætt er þó við að þessi dómur MDE, sem hér hefur verið gerður að umtalsefni, virki letjandi á íslenska dómara í þeim efnum. Þeir eru vafalaust margir ósáttir við þennan dóm enda hafi Hæstiréttur í góðri trú beitt í dómi sínum þeim sjónarmiðum sem MDE hefur mótað í sinni framkvæmd um jafnvægið milli tjáningarfrelsis og friðhelgi einkalífs.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert