Rafmagnslaust er í Hafnarfirði og hluta Garðabæjar. Er svæðið á rafdreifingarsvæði HS veita. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu er ekki vitað um ástæðu rafmagnsleysisins að svo stöddu en unnið er að málinu. Hafa borist tilkynningar víða að úr Hafnarfirði og nokkrum stöðum í Garðabæ um að rafmagn sé úti.