„Meirihluti íslenskra kvenna hórur“

Babtistaprestinum Steven L. Anderson í Arizona hefur lengi verið í nöp við Íslendinga. Nú hefur hann sent mynd á íslenska fjölmiðla þar sem hann rekur í löngu máli hvað sé að íslensku þjóðinni en þá einna helst lauslæti. Myndin var einnig sett á Youtube fyrir skömmu og hefur fengið 22 þúsund áhorf.

mbl.is tók saman nokkur atriði úr myndinni sem sjá má í myndskeiðinu. Hún hefur fengið ríflega 22 þúsund áhorf til þessa og margir sem lýsa skoðunum sínum í athugasemdakerfi Youtube virðast vera ánægðir með röksemdarfærslu Andersons. Þá hafa meira en 600 manns líkað við myndina en 200 sett þumalinn niður.  

Eins og áður sagði hefur Anderson sagt skoðanir sínar á Íslendingum áður og hefur verið sagt frá því á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert