Frá því í desember 2016 hefur verið lokað fyrir umferð fólks á Valahnúk á Reykjanesi. Ákvörðun um lokun var var m.a. tekin í samráði við Almannavarnanefnd Suðurnesja vegna hættu á hruni úr brún hnúksins.
Greint var frá lokuninni fyrir tæpu ári síðan en þá var sagt að varhugavert gæti verið að ganga nærri brúninni. Þá hafði stór sprunga við brún hnúksins tekið að stækka.
Visit Reykjanes tók myndband af svæðinu 15. desember þar sem sjá má að enn er mikil hætta á hruni úr Valahnúk og varhugavert að vera á ferli nálægt brún hnúksins þegar hrynur úr henni.