Lokað eftir að sprunga tók að stækka

Sprunguna má sjá vel á myndinni.
Sprunguna má sjá vel á myndinni. Ljósmynd/Reykjanes Geopark

Valahnúk á Reykjanesi hefur verið lokað fyrir umferð fólks, eftir að stór sprunga við brún hnúksins tók að stækka. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta, þar sem segir að óhjákvæmilega muni ytri hlutinn hrynja úr hnúknum.

Varhugavert geti verið að ganga nærri brúninni.

Kortið er gagnvirkt ef smellt er á það.
Kortið er gagnvirkt ef smellt er á það. Kort/map.is

Gildir þar til annað verður ákveðið

„Í samráði við almannavarnir og Reykjanesbæ var því tekin sú ákvörðun fyrir síðustu helgi að loka fyrir uppgöngu á Valahnúk. Lokunin gildir þar til annað verður ákveðið,“ hefur vefurinn eftir Eggerti Sólberg Jónssyni, hjá Jarðvangi Reykjaness, af Facebook-síðu ferðaþjóna á Reykjanesi.

„Ég vona að þið sýnið þessari ákvörðun skilning og upplýsið ykkar ferðamenn um hættuna sem fylgir uppgöngu ef þeir taka ekki mark á merkingum á svæðinu.“

Vegi að Valahnúk hefur verið lokað.
Vegi að Valahnúk hefur verið lokað. Ljósmynd/Reykjanes Geopark
Ljósmynd/Reykjanes Geopark
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert