Fundur flugvirkja og SA hafinn

Frá fundinum sem hófst fyrir skömmu.
Frá fundinum sem hófst fyrir skömmu. mbl.is/Árni Sæberg

Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins vegna Icelandair hófst núna klukkan fjögur hjá ríkissáttasemjara.

Búast má við að fundurinn standi yfir fram á kvöld og jafnvel lengur. Síðasti fundur viðsemjenda stóð yfir frá klukkan 17 í gær til rúmlega 4 í nótt. 

Verkfall flugvirkja hefur staðið yfir síðan snemma á sunnudagsmorgun. 

Viðsemjendur við fundarborðið í dag.
Viðsemjendur við fundarborðið í dag. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert