Miðflokkurinn vill bæta við frídegi

Þingmenn Miðflokksins vilja að fullveldisdagurinn 1. desember verði gerður að …
Þingmenn Miðflokksins vilja að fullveldisdagurinn 1. desember verði gerður að lögbundnum frídegi. mbl.is/Hari

Sjö þingmenn Miðflokksins og einn þingmaður Flokks fólksins leggja til að fullveldisdagurinn 1. desember verði gerður að lögbundnum frídegi. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Þorsteinn Sæmundsson.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að af því tilefni að hundrað ár séu liðin frá því að Ísland hafi orðið frjálst og fullvalda ríki 1. desember næstkomandi sé lagt til að frá og með þessari hundruðustu ártíð fullveldisins verði 1. desember hvert ár lögbundinn frídagur.

Í lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, er nú, auk helgidaga þjóðkirkjunnar, sérstaklega kveðið á um fjóra heila frídaga: sumardaginn fyrsta, fyrsta mánudag í ágúst (frídag verslunarmanna), 1. maí (baráttudag verkalýðsins) og þjóðhátíðardag Íslendinga 17. júní.  

Þorsteinn Sæmundsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Þorsteinn Sæmundsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.

Að mati flutningsmanna hefur enginn þessara daga haft í för með sér jafnmiklar grundvallarbreytingar á sögu og lífi íslensku þjóðarinnar og fullveldisdagurinn 1. desember 1918. „Með því er ekki gert lítið úr sögu eða mikilvægi þessara daga, sem að sönnu er ærið, en í ljósi þess að mælt er fyrir um að þessir fjórir dagar skuli vera almennir frídagar samkvæmt lögum um 40 stunda vinnuviku telja flutningsmenn eðlilegt og rétt að fullveldisdagurinn 1. desember verði jafnframt gerður að frídegi á sama hátt og mikilvægi hans verði þannig minnst um alla framtíð,“ segir í greinargerðinni.

Flutningsmenn frumvarpsins auk Þorsteins Sæmundssonar eru í stafrófsröð: Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigurður Páll Jónsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert