„Ég nældi í hann á þrjóskunni“

Tinna og Bergur með Hilmar son sinn, en hann fær …
Tinna og Bergur með Hilmar son sinn, en hann fær að leika sér með spil eins og hann vill. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Við grínumst stundum með að við höfum farið á okkar fyrsta stefnumót þegar við vorum 15 ára í tíunda bekk í Tjarnarskóla. Við vorum kosin kóngur og drottning skólans á balli og fengum í verðlaun að fara saman út að borða á Hard Rock, og fórum í bíó. En við urðum ekki kærustupar þá, það var erfitt að sannfæra þennan mann um að ég væri sú rétta handa honum, það tók mig fimmtán ár,“ segir Tinna Finnbogadóttir og hlær þegar hún rifjar upp hvernig leiðir hennar og eiginmannsins, Bergs Hallgrímssonar, lágu fyrst saman.

„Við tókum alltaf strætó saman til og frá Tjarnarskóla og ég fór í Versló eins og hann. En ég hætti í Versló eftir eina önn og fór í MH. Ég var skotin í Bergi alla tíð frá því ég sá hann fyrst 15 ára, í gegnum framhaldsskólaárin og í þessi fimmtán ár þar til ég landaði honum. Ég hélt ég væri að segja honum rosa leyndarmál þegar ég sagði honum öllum þessum árum síðar að ég hefði verið skotin í honum. Hann vissi það alveg, enda hafði hann verið tekinn á teppið inn til skólastjórans í tíunda bekk og beðinn um að hætta að trufla nemandann sem var alltaf að stara á hann. Sem var þá ég. Skólastjórinn hafði miklar áhyggjur af því að ástsýki mín gæti haft slæm áhrif á framgang minn í einkunnum. Þetta var greinilega rosalega illa falið leyndarmál hjá mér,“ segir Tinna.

Enginn spurði eins oft og ég

Tinna segist lítið hafa verið á Íslandi í mörg ár eftir menntó, hún var í háskólanámi í útlöndum og skiptinemi, dvaldi um tíma í Gvatemala og á fleiri stöðum. „Ég held því fram að ástæðan fyrir því að Bergur var ekki genginn út þegar ég kom heim hafi verið sú að engin kona var eins þrjósk og ég. Ég þurfti að vinna fyrir þessu, ég tékkaði reglulega á honum hvort hann væri ekki til í að koma og gera eitthvað með mér, en hann þóttist alltaf vera upptekinn. Ég held að enginn hafi spurt eins oft og ég. Þegar ég tók að mér stórt verkefni í vinnunni og vantaði samstarfsaðila sem væri iðnaðarverkfræðingur, þá var Bergur sá eini sem ég þekkti með þá menntun. Svo það lá beint við að fá hann í lið með sér,“ segir Tinna og bætir við að samstarf þeirra hafi staðið í þrjú ár.

„Ég nældi ekki í hann strax sem kærasta, það tók tvö ár af þessum þremur. Þetta var þolinmæðisverk, eins og að landa stórum fiski,“ segir Tinna og hlær en þau Bergur hafa verið saman undanfarin fimm ár og eiga rúmlega tveggja ára son.

Hafa gaman meðan spilað er

Þau Tinna og Bergur hafa brallað ýmislegt saman, m.a. hannað borðspilið Sjónarspil en þau safna nú fyrir útgáfunni á Karolina fund.

„Ég kem úr mikilli spilafjölskyldu þar sem ævinlega hefur verið heilmikið spilað, bæði brids og fleira. Í seinni tíð hefur það þróast út í borðspilamennsku, en Bergur hefur aftur á móti lengi stundað borðspilamennsku með sínum vinum. Við erum því bæði spilanördar þótt á mismunandi hátt sé. En við komumst að því að það sama hentar ekki öllum þegar kemur að spilamennsku. Mörgum finnst ekkert gaman að spila flókin spil og lengi, þótt okkur Bergi finnist það æðislegt. Sumum finnst ekki gaman þegar spil krefjast þess að fólk hugsi svo mikið að það talar nánast ekkert saman á meðan spilað er. Og mörgum finnst leiðinlegt hvað það getur tekið mikinn tíma að læra sum spil. Okkur fannst því bráðvanta létt spil og einfalt sem hentaði öllum, svo við fórum að velta fyrir okkur hvernig hægt væri að búa til spil sem tæki enga stund að læra og hægt væri að spjalla saman og hafa gaman meðan spilað væri. Og úr varð Sjónarspilið, eftir nokkurra ára þróun hjá okkur.“

Hnotið um orðið kjaftaskur

Í Sjónarspilinu fá leikmenn spjöld með lýsingarorðum og þurfa að velja þau spil sem lýsa meðspilurunum best. Það þarf að vanda valið, allir spilarar eru með sömu spil og hvert spil má bara nota einu sinni. Hver í hópnum er t.d. nördinn og hver er hjálpsamur? Það er ekkert eitt rétt svar því leikmenn fá stig fyrir það hversu margir eru sammála. Hægt er að fylgja eigin sannfæringu og velja orð sem hverjum og einum finnst lýsa meðspilurunum best, eða sýna kænsku og velja orð sem viðkomandi telur að flestir muni velja.

„Við höfum lánað Sjónarspilið til ólíkustu hópa til að prufukeyra það og allir hafa verið mjög ánægðir. Fólk hefur skemmt sér vel og í ljós hefur komið að aðrir sjá vini sína ekki endilega í sama ljósi og þeir sjálfir og sumir líta aðeins út fyrir að vera eitthvað sem þeir eru ekki í raun. Þetta býður upp á mikla skemmtun,“ segir Tinna og bætir við að þó svo að spilið sé ætlað fyrir 14 ára og eldri, þá sé það líka fyrir yngri, svo framarlega sem þeir sem spila skilja orðin. „Yngri börn hafa kannski ekki tileinkað sér öll orðin og reyndar eru dæmi um að fólk um tvítugt hafi hnotið um orð eins og kjaftaskur og nærgætin, þau hafa ekki vitað hvað þau merkja. En ég lít á það sem kost ef spilið hefur þá hliðarverkun að auka orðaforða fólks, ekki veitir af að efla íslenska málkennd. Ég er íslenskunörd og vildi hafa lýsingarorðin í spilinu sem fjölbreytilegust, en Bergur lét mig taka sum þeirra út, hann áleit að of fáir skildu þau. Ég fékk þó að halda nokkrum góðum inni.“

Söfnunin á Karolinafund

Upplýsingar um spilið á Facebook

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert