Fiskistofa ítrekað bent á vandann

Eftirlitsmenn Fiskistofu vigta afla strandveiðibáta í Norðurfirði á Ströndum.
Eftirlitsmenn Fiskistofu vigta afla strandveiðibáta í Norðurfirði á Ströndum. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórnendur Fiskistofu hafa ítrekað bent á þann vanda sem við er að etja vegna eftirlits með fiskveiðum. Þeir telja skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlitshlutverk Fiskistofu vandaða og að hún bendi réttilega á margvíslega erfiðleika í þessum efnum.

Þetta kemur fram í færslu á vef Fiskistofu, þar sem bent er á að stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á eftirlitshlutverki Fiskistofu sem birt var eftir áramótin hafi verið til umræðu í fjölmiðlum undanfarna daga.

„Það kemur réttilega fram í skýrslunni að starfsmönnum Fiskistofu hefur fækkað um 29 prósent frá árinu 2008 samhliða því að verkefnum hefur fjölgað. Þá hefur Fiskistofa enn fremur bent á að bæta þurfi regluverkið til þess að styrkja stofnunina í hlutverki sínu,“ segir í færslunni.

Endurskoða þurfi reglur um vigtun sjávarafla og hvernig meta skuli tengsl fyrirtækja með tilliti til þess hvort einstakir aðilar ráði yfir stærri hlut veiðiheimilda en leyfilegt er samkvæmt lögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert