Páll óánægður með dómsmálaráðherra

Páll Magnússon.
Páll Magnússon. mbl.is/Kristinn Magnússon

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi flokksystur sína, dómsmálaráðherra Sigríði Á. Andersen, á Alþingi vegna þess að til stendur að fjarlægja sýslumann úr Vestmannaeyjum frá og með næstu mánaðamótum.

Hann kveðst hafa komist að þessu fyrir tilviljun þegar hann var staddur á flugvellinum í Vestmannaeyjum í gærmorgun og rakst þar á sendinefnd frá dómsmálaráðuneytinu. 

Við eftirgrennslan kom í ljós að hún var þar til að tilkynna heimamönnum að frá og með föstudeginum næsta, ekki á morgun heldur hinn, yrði enginn sýslumaður í Vestmannaeyjum. Hvorki þingmenn kjördæmisins né bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum höfðu hugmynd um þetta, raunar þvert á móti, því að síðasta haust var þeim aðilum gefið til kynna og fengu þau svör, að einmitt þetta stæði alls ekki til að gera,“ sagði Páll.

Hann sagði að í gærdag hafi svo komið illskiljanleg tilkynning frá ráðuneytinu þess efnis að sýslumaðurinn sem var í Vestmannaeyjum hyrfi tímabundið til annarra starfa. Tímabundið yrði settur sýslumaður í Vestmannaeyjum án þess þó að vera í Vestmannaeyjum, sýslumaðurinn á Suðurlandi.

Og seinna í sömu tilkynningu er sagt að þessar breytingar séu í samræmi við áform dómsmálaráðherra um stefnumörkun í stjórnsýslu ríkisins og við frumvarp sem seinna yrði lagt fram á yfirstandandi þingi, sem fæli meðal annars í sér að ráðherra yrði á hverjum tíma heimilt að skipa sýslumann yfir fleiri embætti en eitt til allt að fimm ára. Samkvæmt orðanna hljóðan væri þá ráðherra heimilt að skipa kannski bara einn sýslumann yfir allt Ísland til fimm ára og sá yrði örugglega í Reykjavík. Þetta er algerlega óboðleg stjórnsýsla,“ sagði Páll.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert