Björt Ólafsdóttir: „Ég varaði við þessu“

Björt Ólafsdóttir.
Björt Ólafsdóttir. mbl.is/Hanna

Þetta hryggir mig og mér finnst hundfúlt að segja „I told you so“ en ég varaði við þessu, segir Björt Ólafsdóttir fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður Bjartrar framtíðar í færslu á Facebook nú í morgun. Björt tjáði sig þar um kísilver PCC á Bakka í kjölfar fréttar sem Fréttablaðið birti í morgun um að kísilverið gæti þurft á fimm milljarða innspýtingu að halda.

Segir Björt kísilverið hafa verið slæma hugmynd alveg frá upphafi sem hún og Björt framtíð hafi varað við. Þetta hafi verið vond hugmynd sem hafi verið „keyrð áfram af fólki til að koma eitthvað um þúsund atkvæðum í NA-kjördæmi í kassann hjá umhverfisflokknum VG. Aðrir flokkar voru sammála, nema ef mig minnir rétt oddviti Pírata á þeim tíma í kjördæminu“, segir Björt í færslunni.

Sjálf viti hún eiginlega ekki til hvaða stjórnmálamanna sé hægt að höfða með þessi málefni. Hægrimenn hafi hingað til ekki haft mikinn áhuga á umhverfisvernd, heldur hafi þeir frekar horft til arðseminnar.

„Fljótt tiltekið held ég að stjórnvöld hafi látið almenning borga um 40-70 milljarða í meðgjöf með þessu öllu. það er einn Landspítali svona til samanburðar. Það þurfti að virkja Þeistareyki hjá Landsvirkjun. það þurfti að leggja línur hjá Landsneti, það þurfti göng á staðnum, höfn á staðnum. Það þurfti fjárfestingasamning, það þurfti Vaðlaheiðargöng en látum þau liggja á milli hluta. Þau munu nýtast þótt framkvæmdin hafi verið allt of dýr. Svo var líka vitað að PCC vill stækka og það er næsta víst að þeir munu leggja áherslu á það svo að starfsemin „geti frekar orðið arðbær“. Þá þarf almenningur í gegnum Landsvirkjun að skuldsetja sig enn meira vegna virkjana sem til þarf.“

Fyrir hvað, spyr Björt svo, er þetta gert? „Sótsvart mengandi iðnaðarver, sem rekur sig ekki. Og almenningur er aftur látinn borga því að stærstu lífeyrissjóðum landsins fannst þetta frábært fjárfestingatækifæri. Lífeyririnn sem þú vinnur þér inn um hver mánaðamót átti að ávaxtast þarna. En það gerir hann nefnilega ekki miðað við þessar áætlanir. Þá eruð þið beðin um að borga meira inn, leggja meira að veði. Vill fólk það?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert