Auglýst eftir framboðum til forsetakjörs

Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Kjör forseta Íslands 27. júní næstkomandi hefur verið auglýst á vef forsætisráðuneytisins. Þar kemur fram að framboðum til forsetakjörs skuli skila til dómsmálaráðuneytisins, ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningabærir, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag.

Ef enginn býður sig fram mun Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, væntanlega vera sjálfkjörinn til að gegna embættinu áfram. En það hefur ekki oft gerst að einhver hafi boðið sig fram gegn sitjandi forseta.

Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1.500 kosningabærra manna, en mest 3.000, er skiptist þannig eftir landsfjórðungum:

Úr Sunnlendingafjórðungi (þ.e. Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Vestmannaeyjabær, Flóahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grindavíkurbær, Suðurnesjabær, Reykjanesbær, Sveitarfélagið Vogar, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Kópavogsbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Kjósarhreppur, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur og Borgarbyggð sunnan Hvítár) séu minnst 1.224 meðmælendur, en mest 2.448.

Úr Vestfirðingafjórðungi (þ.e. Borgarbyggð vestan Hvítár, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Dalabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Húnaþing vestra vestan Hrútafjarðar) séu minnst 59 meðmælendur, en mest 117.

Úr Norðlendingafjórðungi (þ.e. Húnaþing vestra norðan Hrútafjarðar, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Norðurþing vestan Reykjaheiðar og Tjörneshreppur) séu minnst 160 meðmælendur, en mest 320.

Úr Austfirðingafjórðungi (þ.e. Norðurþing austan Reykjaheiðar, Svalbarðshreppur, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð,  Djúpavogshreppur og Sveitarfélagið Hornafjörður) séu minnst 57 meðmælendur, en mest 115.

Auglýsingin er gefin út samkvæmt lögum um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, með síðari breytingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert