„Veiran virðir engin landamæri“

Guðlagur Þór Þórðarson utanríkisráðherra á símafundi.
Guðlagur Þór Þórðarson utanríkisráðherra á símafundi. Ljósmynd/Utanríkisáðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi í gærmorgun við utanríkisráðherra Singapore, dr. Vivian Balakrishan, um hnattræn áhrif og afleiðingar COVID-19-faraldursins. 

Upphaflegur tilgangur símafundarins var að óska eftir aðstoð stjórnvalda í Singapore um að fá heimild til notkunar á hugbúnaði til að rekja smitleiðir, en í liðinni viku var gefinn frjáls aðgangur að þessum búnaði, að því er kemur fram í tilkynningu.

Utanríkisráðherra sagði dr. Balakrishan frá því átaki sem hér hefur verið gert í að greina COVID-smit meðal almennings og sagði íslensk stjórnvöld reiðubúin að deila gagnlegum upplýsingum sem þannig hafa fengist með stjórnvöldum í Singapore og öðrum ríkjum.

Ráðherrarnir ræddu einnig nauðsyn þess að auka samskipti og samstarf ríkjanna sem eiga, þrátt fyrir fjarlægð og ólíkar aðstæður, margar sameiginlegar áskoranir og hagsmuni.

Guðlaugur Þór hefur einnig fundað með utanríkisráðherrum Norðurlandanna gegnum fjarfundabúnað og átt tvíhliða símafundi með utanríkisráðherra Færeyja, Jenis av Rana, og Evrópumálaráðherra Austurríkis, Karoline Edtstadler. Á fundi Guðlaugs Þórs og Edtstadler var sérstaklega rætt um viðbrögð stjórnvalda ríkjanna við faraldrinum, en aðgerðir íslenskra stjórnvalda og skimun fyrir kórónaveirunni hafa vakið athygli í Austurríki, samkvæmt tilkynningunni.

Norrænt samstarf mikilvægt

„Norrænt samstarf og gott samband við nágrannalönd okkar er afar mikilvægt á tímum sem þessum,“ segir Guðlaugur Þór. „Þrátt fyrir þann glundroða sem hröð útbreiðsla faraldursins hefur valdið í alþjóðlegu samstarfi er flestum orðið ljóst að veiran virðir engin landamæri. Samstarf og samkennd er lykillinn að því að ráða niðurlögum þessa vágests.“

Annar reglubundinn fundur norrænu utanríkisráðherranna vegna COVID-19 fór fram 26. mars. Náið samráð hefur átt sér stað undanfarið meðal Norðurlandanna í tengslum við heimferðir Norðurlandabúa hvaðanæva að. Ráðherrarnir báru saman bækur sínar hvað varðar efnahagslegar horfur og viðbrögð stjórnvalda og sammæltust um mikilvægi þess að vinna gegn hvers konar viðskiptahindrunum, hvort sem það væri innan EES eða á öðrum vettvangi. Ráðherrarnir munu funda aftur síðar í þessari viku.

Áhyggjur af áhrifum á þróunarríki

Á fjarfundi norrænna þróunarsamvinnuráðherra síðasta föstudag ræddu ráðherrarnir um stöðu mála vegna baráttunnar við COVID-19 í þróunarlöndum, þá helst í Afríku sunnan Sahara. Ráðherrar lýstu áhyggjum af áhrifum faraldursins á þróunarríki þar sem efnahags- og heilbrigðiskerfi eru veikburða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert