Ísland næst á eftir Svíþjóð

Afar misjafnt er eftir löndum hvernig staðið er að sýnatöku …
Afar misjafnt er eftir löndum hvernig staðið er að sýnatöku vegna kórónuveirunnar. AFP

Vegna fjölgunar nýrra innlendra smita hefur Ísland hækkað mjög á lista Sóttvarnastofnunar Evrópu yfir þau ríki sem eru með flest smit á hverja 100 þúsund íbúa. Af Norðurlöndunum er Svíþjóð eina landið sem er hlutfallslega með fleiri smit en Ísland.

Miðað er við tölur frá því í gær en samkvæmt listanum eru 15,4 kórónuveirusmit á hverja 100 þúsund íbúa á Íslandi en 30,7 í Svíþjóð. Í Danmörku eru smitin 10,6, Finnlandi 2,3 og 3,6 í Noregi.

Lönd heims nota mörg hver töl­ur frá Sótt­varna­stofn­un Evr­ópu um svo­kallað ný­gengi, þ.e. fjölda nýrra til­fella síðustu 14 daga á hverja 100.000 íbúa, til að ákveða fyr­ir hvaða ríkj­um á að opna landa­mæri sín. Þannig vakti at­hygli þegar Lett­ar gerðu það að skil­yrði að Íslend­ing­ar þyrftu að fara í 14 daga sótt­kví við kom­una til land­ins, en sú regla var sett á ferðamenn frá öll­um ríkj­um (sem á annað borð mega koma til lands­ins) þar sem hlut­fallið var yfir 16.

Lúxemborg sker sig nokkuð úr á lista Sóttvarnastofnunar Evrópu með 209,5 smit á hverja 100 þúsund íbúa. Mögulega er annarri aðferð beitt við útreikninga þar líkt og var áður á Íslandi þar sem talin voru með virk sem og óvirk ný smit sem greindust á landamærunum.

Á Spáni er hlutfallið 60,2, Rúmeníu 79,4, Búlgaríu 45,7 og 44,4 í Belgíu. 

Listi Sóttvarnastofnunar Evrópu frá 2. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert