Annar dauður fálki fannst á Akureyri

Dauður fálki á stígnum neðan við andarpollinn hjá Sundlaug Akureyrar.
Dauður fálki á stígnum neðan við andarpollinn hjá Sundlaug Akureyrar. Ljósmynd/Akureyti.net - Margrét Sóley Matthíasdóttir

Fálkahræ fannst í dag í miðjum Akureyrarbæ. Þetta er annar dauði fálkinn sem finnst á Akureyri á stuttum tíma.

Fálkinn fannst við göngustíg neðan við andarpollinn hjá Sundlaug Akureyrar.

Börn sem áttu þar leið um gengu fram á fullorðinn karlfugl og virðist mjög stutt síðan hann drapst,“ segir að vef Akureyri.net sem segir fyrst frá.

Sjaldgæf sjón

Ólafaur Karl Nielsen fuglafræðingur hjá Náttúrustofnun, sagði við Akureyri.net á miðvikudaginn að sjaldgæft væri að fullorðnir fálkar dræpust annars staðar en fjarri mannabyggð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert