Enn óljóst hvaða ráðherra var í samkvæminu

Ríkisstjórn Íslands.
Ríkisstjórn Íslands. mbl.is/Arnþór

Fjölmiðlar hafa náð í flesta ráðherra eða aðstoðarmenn þeirra vegna málsins sem kom upp í gærkvöldi vegna ráðherra sem var í ólöglegu samkvæmi í miðbæ Reykjavíkur.

Ekki hefur enn fengist úr því skorið hvaða ráðherra var í samkvæminu. Ró­bert Mars­hall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórarinnar, segir að verið sé að afla upplýsinga um málið. 

Þegar þetta er skrifað hefur ekki náðst í Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra eða aðstoðarmann hans og ekki heldur Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra eða aðstoðarmenn hennar. Svör hafa borist frá öðrum ráðherrum eða aðstoðarmönnum þess efnis að þeir hafi ekki verið í samkvæminu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert