„Þess vegna lætur kirkjan í sér heyra“

Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands segir að kirkjan láti í …
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands segir að kirkjan láti í sér heyra líkt og Jesús þegar honum mislíkaði framgöngu yfirvalda. mbl.is/Ómar Óskarsson

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, lagði áherslu á að kirkjan léti í sér heyra vegna hluta sem ekki styðja við lífið og lánið, í predikun sinni í nýársmessu Dómkirkjunnar í dag.

Þar á meðal væru lífshættir jarðarbúa sem stefni jörðinni í átt að eyðileggingu, þegar fólk flýr heimkynni sín vegna óréttlætis af ýmsum toga, vegna fátæktar og hungurs eða hvers annars sem ekki styður við lífið og lánið.

„Jesús sjálfur lét í sér heyra þegar honum mislíkaði framganga yfirvalda, þegar hann horfði upp á óréttlæti eða skort á kærleika. Hann braut viðteknar venjur eins og þegar hann læknaði á hvíldardegi. Hann benti á samhjálp þegar hann talaði um miskunnarverkin og endaði ræðu sína á að „allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér“,“ sagði biskup í ávarpi sínu.

Jesús hafi talað máli barna og kvenna sem ekki höfðu jafna stöðu og karlar í samfélaginu. Hann hafi sagst vera vegurinn, sannleikurinn og lífið og hann sagðist eftirláta okkur sinn frið.

„Trú er ekki prívat. Hún er persónuleg. Trúin er ekki einkamál því hún hefur ekki aðeins áhrif á líf hins trúaða einstaklings heldur þeirra sem viðkomandi umgengst. Trú er lífsskoðun og þess vegna deilum við trú okkar með öðrum í samtali og sýnum hana í og með verkum okkar.  Andleg leit er mikil í nútímanum og leitast margar sóknarkirkjur við að svara þeirri þörf þar sem aldagamlar hefðir og nútíma möguleikar eru viðhöfð,“ sagði Agnes í lokin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert