Þorbjörn fær fyrsta Verndarvænginn

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, afhendir nafna sínum Boga …
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, afhendir nafna sínum Boga Adolfssyni Verndarvænginn, viðurkenningu sem Icelandair mun veita árlega fyrir eftirtektarvert starf björgunarsveitar. Ljósmynd/Landsbjörg

Icelandair Group og Slysavarnafélagið Landsbjörg skrifuðu í gær undir áframhaldandi samstarfssamning til næstu fimm ára en félagið hefur frá árinu 2014 verið einn af aðalstyrktaraðilum Landsbjargar. 

Samningurinn var undirritaður við einn vinsælasta ferðamannastað landsins um þessar mundir, gosstöðvarnar í Geldingadölum. Við sama tilefni var tilkynnt um nýja viðurkenningu, Verndarvænginn, sem Icelandair mun veita árlega fyrir eftirtektarvert starf björgunarsveitar. Fyrsti Verndarvængurinn var veittur björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík fyrir öflugt og mikilvægt starf við gosstöðvarnar.

„Slysavarnafélagið Landsbjörg vinnur mjög mikilvægt starf og gegnir lykilhlutverki innan almannavarnarkerfis okkar Íslendinga. Verkefnum björgunarsveita um allt land hefur fjölgað mikið undanfarinn áratug eftir því sem ferðaþjónusta hér á landi hefur eflst og við teljum mikilvægt að við hjá Icelandair, sem flytjum meirihluta ferðamanna til Íslands, leggjum okkar lóð á vogarskálarnar til að stuðla að öryggi fólks sem ferðast um landið,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group, í tilkynningu. 

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, og Kristján Þór Harðarson, …
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, og Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, undirrituðu í gær áframhaldandi samstarfssamning félaganna sem kveður á um beinan fjárhagslegan styrk auk sérstakra styrkja til flugferða innanlands og milli landa. Ljósmynd/Landsbjörg

Beinn fjárhagsstyrkur og flugstyrkir

Samstarfssamningur Icelandair og Slysavarnafélagsins Landsbjargar kveður á um beinan fjárhagslegan styrk auk sérstakra styrkja til flugferða innanlands og milli landa. Einnig verður lögð áhersla á samstarf Icelandair og Landsbjargar hvað varðar forvarnir og upplýsingagjöf til erlendra ferðamanna, öryggisþjálfun og gerð viðbragðsáætlana. Horft verður til þess að efla vefinn Safetravel.is enn frekar en vefurinn er öflug og góð upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Auk þess mun Icelandair koma upplýsingum um vefinn áfram til flugfarþega um sínar dreifileiðir. 

Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir stuðning Icelandair við félagið vera ómetanlegan í því viðamikla starfi sem Slysavarnafélagið Landsbjörg sinnir. „Við höfum lagt mikla áherslu á öryggismál innlendra sem erlendra ferðamanna síðasta áratuginn, meðal annars í gegnum Safetravel-verkefnið okkar. Þessi fimm ára samningur gefur okkur því möguleika á að gera enn betur í þeim málaflokki og undirstrikar vilja beggja aðila til þess að vinna áfram sameiginlega að bættu öryggi ferðamanna. Samstarf félagsins og Icelandair hefur verið einstaklega farsælt og skiptir þar mestu máli sá skilningur sem Icelandair hefur sýnt starfsemi okkar og mikilvægi þess fyrir íslenskt samfélag.“

Undanfarin ár hafa Landsbjörg og Icelandair verið í virku samstarfi varðandi öryggisþjálfun, gerð viðbragðsáætlana og viðbrögð við flugatvikum. Þetta samstarf verður eflt enn frekar á næstu árum, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert