Rætt um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra flutti opnunarávarp
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra flutti opnunarávarp Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ræddi um bakslagið sem orðið hefur í jafnréttismálum á síðustu árum og þakkaði alþjóðlegum kvennahreyfingum og aðgerðarsinnum fyrir mikilvæga baráttu þeirra gegn kynbundnu ofbeldi í opnunarávarpi sínu á Reykjavík Dialogue í Hörpu í dag. 

Viðburðurinn er helgaður baráttunni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Annars vegar er um að ræða alþjóðlega ráðstefnu 16.-17. ágúst og hins vegar heimsfund aðgerðasinna og kvennasamtaka 17.-18. ágúst. 

Binda enda á kynbundið ofbeldi

Katrín kvaðst full eftirvæntingar að fylgjast með umræðunum næstu daga og fá síðan í hendur drög að yfirlýsingu um aðgerðir til að binda enda á ofbeldi gegn konum og stúlkum til næstu fimm ára.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að Reykjavík Dialogue  samvinnuverkefni forsætisráðuneytisins og RIKK-Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands.

„Alþjóðleg verkefnisstjórn með þátttöku fulltrúa frá ólíkum heimshlutum skipuleggur fundinn. Ríkisstjórn Íslands styrkir viðburðinn ásamt Reykjavíkurborg og Norrænu ráðherranefndinni.“

Ráðstefnan og heimsfundurinn eru opin öllum sem skrá sig. Skráning fer fram á vefsíðu Reykjavík Dialogue

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert