90% virkni fyrir 5-11 ára börn

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ein helsta ástæðan fyrir því að ákveðið var að bjóða börnum 5-11 ára bólusetningu gegn Covid-19 hér á landi er að veiran getur valdið alvarlegum sjúkdómi hjá börnum á þessum aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni.

Sé jafn áhrifarík og bólusetning 12-15 ára barna

Í tilkynningunni, sem birt var á covid.is, er vísað í samantekt Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDCI) frá 1. desember sl. en þar kemur fram að 0,6% barna sem smitast af Covid-19 þurfi á spítalainnlögn að halda, 10% þeirra þurfi að leggjast inn á gjörgæslu og 0,006% smitaðra barna látist. Þá sýni upplýsingar frá Bandaríkjunum (MMWR 10. september og 12. nóvember 2021) sambærilegar afleiðingar af völdum Covid-19.

Séu ofangreindar tölur yfirfærðar á íslensk börn á aldrinum 5-11 og öll börn á þeim aldri myndu smitast (32.000), gætum við búist við að 100-200 börn þyrftu að leggjast inn á sjúkrahús, 16 legðust inn á gjörgæsludeild og 1-2 börn myndu látast vegna Covid-19, að því er Þórólfur greinir frá í tilkynningunni.

Þá sýni niðurstöður bólusetningarrannsóknar, sem framkvæmd var á um 3.000 börnum á aldrinum 5-11 ára (NEJM 9. nóvember 2021) að virkni bólusetningar hafi verið um 90% gegn smiti og að engar alvarlega aukaverkanir hafi komið fram. Börnin hafi myndað mótefni í háuum styrkleika, samsvarandi og sést eftir bólusetningu barna á aldrinum 12-15 ára. Góð virkni hafi sést af bólusetningu þessa aldurshóps og reynslan hér á landi sýni að bólusetning barna á aldrinum 12-15 ára virðist árangursríkari en bólusetning fullorðinna með tveimur skömmtum.

„Allar vísbendingar eru því um að bólusetning barna á aldrinum 5-11 ára séu a.m.k. eins árangursríkar og bólusetningar barna 12-15 ára. Hins vegar er ekki vitað hversu lengi vernd bólusetningarinnar mun vara,“ segir í tilkynningunni.

Bólusetningar barna munu koma til með að draga úr truflun …
Bólusetningar barna munu koma til með að draga úr truflun á daglegu lífi bæði barna og fullorðinna, að sögn sóttvarnarlæknis. AFP

Bólusetningar minnki líkur á langtíma áhrifum

Jafnframt eigi bólusetning barna að minnka líkur á langtíma áhrifum af völdum Covid-19 (e. „Long Covid“). Langtíma áhrif Covid-19 séu skilgreind sem sjúkdómseinkenni sem eru viðloðandi vikum og mánuðum eftir að sýkingin er yfirstaðin. Þessi áhrif séu vel þekkt hjá fullorðnum en ekki verið vel lýst hjá börnum enn sem komið er.

„Full ástæða er hins vegar að hafa áhyggjur af þessum áhrifum hjá börnum, jafnvel þeim sem ekki hafa veikst alvarlega í upphafi sjúkdómsferilsins. Bólusetning mun með fækkun smita að líkindum koma í veg fyrir langtímaáhrif af völdum Covid-19.“

Enn sem komið er hafi aukaverkanir eftir bólusetningu barna 5-11 ára ekki verið tilkynnar. Á þessari stundu hafi þó ekki mörg börn verið bólusett þannig að ekki er hægt að fullyrða með vissu hvort alvarlegar aukaverkanir muni sjást eftir bólusetninguna. Hjá eldri börnum hefur bólgum í hjartavöðva og/eða gollurhúsi verið lýst hjá einum af hverjum 10.000 bólusettum, að því er greint frá á vef sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna. Því hefur þó ekki verið lýst hjá yngri bólusettum börnum.

Sé tíðni alvarlegra aukaverkana Covid-19 og bólusetningar yfirfærðar frá aldurshópnum 12-16 ára yfir á aldurshópinn 5-11 ára á Íslandi, megi búast við að 32 fengju hjartavöðvabólgu eftir Covid-19 en einungis tvö börn eftir bólusetningu. Að auki megi búast við öðrum alvarlegum aukaverkunum eftir Covid-19 sem ekki sjást eftir bólusetninguna, að því er greint frá í niðurstöðum rannsóknar sem birt var á vef sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna.

„Því má fullyrða að alvarlegar aukaverkanir eftir Covid-19 hjá börnum 5-11 ára séu umtalsvert líklegri en alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningu,“ segir Þórólfur í tilkynningunni.

Heilsugæslan mun sjá um framkvæmd bólusetningu barna á aldrinum 5-11 …
Heilsugæslan mun sjá um framkvæmd bólusetningu barna á aldrinum 5-11 ára eftir næstu áramót. mbl.is/Kristinn Magnússon

Framkvæmdin verði í höndum heilsugæslunnar

Þar að auki segir hann bólusetningu barna á aldrinum 5-11 ára koma til með að lágmarka truflun á skólagöngu og félagslífi barna, og minnka truflun á atvinnu foreldra. Þá muni útbreidd bólusetning barna einnig minnka líkur á dreifingu smits innan fjölskyldna og til viðkvæmra hópa.

Líkt og Þórólfur greindi frá í samtali við mbl.is í gær, er fyrirhugað að hefja bólusetningu hjá börnum fljótlega eftir næstu áramót og að nánari upplýsingar um fyrirkomulagið verði birtar síðar.

„Áætlað er að bólusetning fari fram í grunnskólum landsins en allur undirbúningur verður gerður í samvinnu við heilsugæsluna, skóla- og menntamálayfirvöld, umboðsmann barna og Persónuvernd. Framkvæmdin verður í höndum heilsugæslunnar,“ segir Þórólfur að endingu í tilkynningunni, sem lesa má í heild sinni á covid.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert