Kæra Hnútavirkjun til að vernda verðmæta náttúru

Segir m.a. í kærunni að Skaftárhreppur búi yfir magnaðri, lítt …
Segir m.a. í kærunni að Skaftárhreppur búi yfir magnaðri, lítt raskaðri og verðmætri náttúru og að ferðaþjónustan sé mikilvægasta atvinnugrein sveitarfélagsins. Ljósmynd/Gísli Sigurðsson

Ákvörðun sveitarstjórnar Skaftárhrepps um útgáfu framkvæmdaleyfis vegna virkjunar við Hnútu í Hverfisfljóti hefur verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála af fimm náttúruverndarsamtökum og hópi landeigenda. 

Fréttablaðið greinir frá.

Land­vernd, Eld­vötn-sam­tök um náttúru­vernd í Skaft­ár­hreppi, Náttúru­verndar­sam­tök Suður­lands, Náttúru­verndar­sam­tök Ís­lands og Ungir um­hverfis­sinnar eru samtökin sem hafa kært útgáfuna.

Mögulegt brot á náttúruverndarlögum

Er kæran meðal annars lögð fram á þeim grundvelli að virkjunin gæti falið í sér brot á náttúruverndarlögum þar sem eldhraunum, fossum og víðernum sem njóta verndar verði spillt. Þá myndi það brjóta í bága við lög um umhverfismat og útgáfu framkvæmdaleyfis ef ekki yrði tekið tillit til afar neikvæðs álits Skipulagsstofnunar.

Segir m.a. í kærunni að Skaftárhreppur búi yfir magnaðri, lítt raskaðri og verðmætri náttúru og að ferðaþjónustan sé mikilvægasta atvinnugrein sveitarfélagsins. Virkjunin geti spillt víðernum á stóru svæði, m.a. raskað Núpahrauni, Skaftáreldahrauni og fossaröðinni í Lambhaga og Faxa.

Þá er bent á að Skipulagsstofnun telji að ekki sé búið að sýna fram á brýna nauðsyn framkvæmdanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert