Hrasaði fyrir framan sjálfan forsetann

(f.v.) Ásthildur Sturludóttir, Kristín Þóra Kjartansdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Þórarinn …
(f.v.) Ásthildur Sturludóttir, Kristín Þóra Kjartansdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Þórarinn Blöndal og Katrín Jakobsdóttir. Ljósmynd/Halla Björk Reynisdóttir

Ljósmyndarinn Sindri Swan varð fyrir því óhappi í vikunni að detta aftur fyrir sig í runna þegar hann átti að mynda sjálfan forseta Íslands, forsætisráðherra, bæjarstjóra Akureyrarbæjar, framkvæmdastjóra menningarhússins Flórunnar og listamann. 

Þó má segja að lán í óláni hafi verið að Halla Björk Reynisdóttir, formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar, náði að festa viðbrögð myndefnisins á filmu. Miðað við myndina brá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra mest í brún og reyndi Guðni Th. Jóhannesson forseti að rétta hendina út, þó ekki fylgi sögunni í hvaða tilgangi. 

Viðbrögðin mismunandi

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri rak einnig upp stór augu en Kristín Þóra Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Flórunnar, virtist sjá hið spaugilega í atvikinu. Listamaðurinn Þórarinn Blöndal kippti sér ekki mikið upp við fall Sindra Swans, ef marka má myndina, heldur fylgdist með sallarólegur. 

Myndin var tekin við opnunarhátíð Flórunnar, Menningarhúss í Sigurhæðum, síðastliðinn mánudag og fékk mbl.is að birta hana með leyfi Sindra Swans og Kristínar Þóru. 

Á efri hæð menningarhússins verða vinnu­stof­ur fyr­ir lista­menn og hönnuði og á aðalhæð stíga Guðrún Run­ólfs­dótt­ir, Matth­ías Jochumsson og mörg fleiri úr menn­ing­ar­sögu lands­ins fram í sviðsljósið, eins og það er orðað í til­kynn­ingu. Hönnuður sýn­ing­ar­inn­ar er áðurnefndur Þór­ar­inn Blön­dal. Mynd­list­ar­menn með verk í sýn­ingu eru þau Jóna Hlíf Hall­dórs­dótt­ir og Jón Lax­dal Hall­dórs­son.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka