Þrenna í fyrsta leik með KR

Alice Walker skoraði þrennu.
Alice Walker skoraði þrennu. Ljósmynd/KR

KR fer vel af stað í 2. deild kvenna í fótbolta en KR-ingar unnu stórsigur á Vestra á heimavelli í 1. umferðinni í dag, 4:0, en um upphafsleik deildarinnar og eina leik dagsins var að ræða. 

Hin bandaríska Alice Walker byrjar með látum hjá KR en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í sínum fyrsta deildarleik með liðinu.

Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir komst einnig á blað hjá KR, sem féll úr 1. deildinni á síðustu leiktíð.

Vestri er með nýtt lið sem tekur þátt á Íslandsmótinu í fyrsta skipti en áður hafa kvennalið leikið undir merkjum BÍ/Bolungarvíkur og ÍBÍ fyrir vestan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert