Veltir upp hvort milda eigi dóminn

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari.
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Málflutningur í áfrýjunarmáli Angejelin Stekaj, Claudiu Sofiu Coelho, Murat Selivrada og Sheptim Qerimi, sem öll voru dæmd fyrir aðild sína í Rauðagerðismálinu svokallaða, fór fram í Hæstarétti í dag. Sú óvenjulega staða var uppi að ríkissaksóknari velti því upp hvort milda ætti dóm yfir sakborningum. 

Angjelin játaði í skýrslutöku að hafa orðið Armando Beqirai að bana við heimili hans í Rauðagerði. Hann var dæmdur í 16 ára fangelsi í héraði en Landsréttur þyngdi dóminn yfir Angjelin í 20 ára fangelsi. Ákæruvaldið hafði farið fram á 18-20 ára dóm í málinu.

Þá fengu hinir sakborningar málsins 14 ára fangelsi í Landsrétti fyrir hlutdeild í brotinu en þau voru sýknuð fyrir sinn þátt í héraði.

Angjelin Sterkaj var dæmdur í 20 ára fangelsi í Landsrétti …
Angjelin Sterkaj var dæmdur í 20 ára fangelsi í Landsrétti í lok október á síðasta ári. mbl.is/Kristinn Magnússon

Var heimild í lögum ?

Hefur því verið velt upp hvort heimilt hafi að dæma Angjelin í 20 ára fangelsi í stað þess hefðbundna 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Armando Beqirai að bana við heimili hans að Rauðagerði.

Embætti ríkissaksóknara hefur tekið undir með sakborningum í málinu um að réttast væri að Hæstiréttur tæki á málinu. Ástæðan er sú að hugsanlega hafi skort lagaheimild til að dæma Angjelin í 20 ára fangelsis í málinu sökum þess að vafi leiki á því að tilteknar lögákveðnar aðstæður hafi verið fyrir hendi í málinu.

Sigríður L Friðjónsdóttir, fór yfir málið fyrst fyrir hönd ríkissaksóknara þar sem hún benti á það sem hún teldi að Hæstarétti bæri að skoða við úrvinnslu málsins.

Verjendur sakborninga við málflutninginn í Hæstarétti í morgun.
Verjendur sakborninga við málflutninginn í Hæstarétti í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Velti upp mildun dóms 

Spurð af dómara um ástæður þyngingar dómsins í Landsrétti þá lýsti Sigríður þeirri skoðun sinni að svo virtist sem ákæruvaldið og dómur Landsréttar „væri ekki með fræðin á hreinu.“ Þá velti hún því upp hvort réttast væri að milda dóm yfir hinum sakborningunum í sama hlutfalli ef hæstiréttur ákveður að færa dóm Angjelin úr 20 ára fangelsi í 16 ára fangelsi.   

Einn sakborninga, Claudia Sofia Coelho mætti fyrir dóminn. Um 20 manneskjur sátu í salnum og fylgdust með málflutningi.

Einn sakborninga, Claudia Sofia Coelho mætti fyrir dóminn. Um 20 …
Einn sakborninga, Claudia Sofia Coelho mætti fyrir dóminn. Um 20 manneskjur sátu í salnum og fylgdust með málflutningi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert