Fjalla um þunga fjárhagsstöðu bænda

Ríkisstjórnin.
Ríkisstjórnin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra þriggja ráðuneyta; matvælaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og innviðaráðuneytisins.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að hópurinn muni leggja mat á þá stöðu sem upp er komin í landbúnaði í kjölfar endurtekinna hækkana á stýrivöxtum og verðhækkana á aðföngum.

„Höfuðstóll verðtryggðra lána hefur hækkað hratt síðustu misseri og þannig rýrt eiginfjárstöðu bænda eins og víðar í samfélaginu. Staða landbúnaðar er þó sérlega erfið að því leyti að rekstur búa er nátengdur heimilum bænda og hækkanir við fjármagnskostnað og aðfangaverð hafa haft íþyngjandi áhrif. Rekstur í landbúnaði er því orðinn þungur hjá mörgum framleiðendum,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Starfshópurinn mun draga saman nýjustu gögn um stöðuna og þróun síðustu missera.
Í framhaldinu verða lagðar fram tillögur með hliðsjón af þessum gögnum og jafnframt leiða leitað til að auðvelda kynslóðaskipti og nýliðun í landbúnaði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert