Myndskeið: Þorvaldur truflaður í beinni á CNN

Það er í nógu að snúast hjá Þorvaldi á jarðhræringavaktinni.
Það er í nógu að snúast hjá Þorvaldi á jarðhræringavaktinni. Skjáskot

Það hefur mætt talsvert á Þorvaldi Þórðarsyni, prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands, undanfarið, en hann hefur ekki aðeins verið að svara íslenskum fjölmiðlum varðandi stöðu mála á Reykjanesskaganum heldur einnig alþjóðapressunni. Ljóst er að síminn stoppar ekki hjá Þorvaldi, ekki einu sinni í beinni útsendingu. 

Þorvaldur var í viðtali á CNN í dag þar sem hann sagði fréttamanni frá gangi mála. Sem fyrr segir eru margir að reyna að ná í Þorvald sem gleymdi líklega að setja símann sinn á hljóðlausa stillingu í beinni útsendingu. 

Hefði ekki sambærileg áhrif

Allt fór þó vel og Þorvaldur gat svarað öllum helstu spurningum fréttamanns CNN, sem velti m.a. vöngum hvort mögulegt gos myndi verða jafn afdrifaríkt og eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010. Í apríl það ár varð sprengigos í toppöskju eldfjallsins sem leiddi til þess að um það bil 100.000 áætlunarferðum í flugi var aflýst.

Þorvaldur tók fram að ef það kæmi gos nú þá myndi það að öllum líkindum ekki hafa sambærileg áhrif á flugsamgöngur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert