Sakar íslensku þjóðina um gyðingahatur

Izhar Cohen ávarpaði íslensku þjóðina í spjallþætti á ísrelsku Stöð …
Izhar Cohen ávarpaði íslensku þjóðina í spjallþætti á ísrelsku Stöð 13 (e. Channel 13). Skjáskot/Youtube

Izhar Cohen, sem vann Eurovision árið 1978 fyrstur Ísraelsmanna, sakar íslensku þjóðina um gyðingahatur í sjónvarpsþætti á Stöð 13 í heimalandi sínu.

„Kæru gyðingahatarar (e. anti-semitic) ísvinir. Við vitum að þið hatið, afsakið, ykkur líkar illa við okkur,“ segir Cohen í upphafi ávarpi sínu til íslensku þjóðarinnar og talar þar ensku.

Segir hann Íslendinga berjast fyrir mannréttindum allra nema Ísraelsmanna og gyðinga, og séu þess vegna gyðingahatarar.

Ávarp Cohens kemur í kjölfar mótmæla á Íslandi við þátt­töku Ísra­els­rík­is í Eurovisi­on-söngv­akeppn­inni sem fram fer í Svíþjóð á næsta ári.

Mik­ill meiri­hluti íslensku þjóðar­inn­ar, eða 76%, eru sam­mála því að úti­loka eigi Ísra­el frá þátt­töku í Eurovisi­on. Þetta eru niður­stöður könn­un­ar sem Pró­sent fram­kvæmdi 14. til 21. des­em­ber.

Fyllið á ykkur kjaftinn með klökum

Cohen stingur upp á því að í stað þess að taka pólitískar skoðanir með sér í Eurovision, ættu Íslendingar að semja gott lag til þess að vinna keppnina. 

Endar hann ávarp sitt á því að segja:

„Þið hafið mikinn ís á Íslandi, er það ekki? Fyllið á ykkur kjaftinn með klökum og haldið fokking kjafti! Ísrael 12 stig, Ísland núll.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert