Engar vísbendingar um brennuvarginn

Skjáskot úr myndskeiðinu þar sem sjá má brennuvarginn kveikja í …
Skjáskot úr myndskeiðinu þar sem sjá má brennuvarginn kveikja í bifreiðum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn ekki fundið brennuvargarinn sem kveikti í bílum á bílastæði við Smiðjuveg í Kópavogi á laugardaginn.

„Þetta er í rannsókn. Það eru engar vísbendingar um gerandann ennþá,” segir Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Verið er að skoða myndefni úr öryggismyndavél og vinna úr þeim upplýsingum sem eru fyrir hendi.

Spurður segist Gunnar ekki hvort bílarnir sem kveikt var í séu ónýtir, en eldfimu efni var hellt yfir bílana áður en kveikt var í þeim. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert