Hætta talin minni í Grindavík

Hætta innan Grindavíkur er talin vera minni en áður, en …
Hætta innan Grindavíkur er talin vera minni en áður, en þó töluverð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heildarhættumat fyrir Grindavík hefur verið fært niður í appelsínugult, sem þýðir að töluverð hætta sé í bænum. Veðurstofa Ísland gaf út uppfært hættumat í dag og er þetta meðal helstu breytinga. 

Í tilkynningu frá Veðurstofu er þó tekið fram að þó heildarhættumat fyrir Grindavík hafi verið fært niður um eitt stig, er hætta í tengslum við sprungur áfram metin mjög mikil. 

„Það er hættan sem nú er kölluð „jarðfall ofan í sprungu“ og lýsir hættu sem gæti verið til staðar þar sem sprungur leynast undir ótraustu yfirborði sem gæti gefið sig,“ segir í tilkynningunni.

Ný GPS-gögn sýna að mjög lítil hreyfing hefur mælst innan Grindavíkur síðustu daga og þýðir það að hættumat í tengslum við sprunguhreyfingar innan hefur verið lækkað. 

Hætta vegna sprunguhreyfinga er nú metin töluverð.

Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert