Milljarður í samþættingu í þágu farsældar barna

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um úthlutun á framlagi til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar á þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2024.

Jafnframt hefur ráðherra samþykkt tillögu um áætluð framlög til sveitarfélaga, sem byggir á reglugerðinni fyrir árið 2024, að fjárhæð 1.078 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.

Úthlutun byggir á fjórum forsendum sem allar hafa jafnt vægi:

  1. Fjöldi barna í hverju sveitarfélagi.
  2. Fjöldi barna með stuðning í leik- og grunnskóla.
  3. Fjöldi barna á lágtekjuheimilum.
  4. Fjöldi barna af erlendum uppruna.

Framlögin verða enduráætluð í mars þegar uppfærð gögn berast frá Hagstofu Íslands um fjölda barna á lágtekjuheimilum vegna tekna ársins 2022 og uppfærslu á fjölda barna með stuðning í leik- og grunnskólum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert