Fleiri mislingasmit enn ekki fundist

Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir ræddi mislinga við mbl.is.
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir ræddi mislinga við mbl.is. Samsett mynd/Árni Sæberg/Eggert Jóhannesson

Enn hefur ekkert mislingasmit greinst hér á landi til viðbótar því sem greindist á Landspítalanum í síðustu viku.

Þetta segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is en ferðamaður greindist með mislinga á Landspítalanum síðasta laugardag.

Misl­inga­smitið er hið fyrsta sem grein­ist hér­lend­is frá ár­inu 2019. 

„Einkenni smits koma yfirleitt viku til tólf dögum eftir smit,“ segir Guðrún en sjúklingurinn flaug til landsins þann 1. febrúar. Því séu enn góðar líkur á því að fleiri greinist með mislinga.

Hvetja til bólusetninga

Sóttvarnarlæknir hvetur þau sem voru í nánu samneyti við fólk sem var útsett fyrir mislingasmitið og ekki eru bólusett og hafa ekki fengið mislinga til að þiggja bólusetningu við mislingum sem fyrst. Þetta á aðeins við þá sem eru fæddir 1970 eða síðar.

Heimilisfólk þeirra sem telja sig hafa verið útsetta getur fengið ráðgjöf um hvort bólusetningar er þörf í gegnum netspjall Heilsuveru eða í síma 1700. Þar fást jafnframt upplýsingar um hvar og hvenær er bólusett á höfuðborgarsvæðinu.

Íbúar landsbyggðarinnar geta haft samband við sína heilsugæslu til að fá upplýsingar um bólusetningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert