Aukið hlutafé frá stærstu hluthöfum Play

Flugvélar frá Play.
Flugvélar frá Play. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn flugfélagsins Play hefur safnað áskriftarloforðum frá hluthöfum sem nemur 574.943.745 hlutum að nafnverði og er útgáfugengið á hvern hlut 4,5 kr. Samanlögð fjárhæð þeirra áskrifta sem félagið hefur móttekið nemur 2.587.246.853 milljónum króna.

Áskriftirnar eru háðar þeim skilyrðum að hluthafar PLAY samþykki að veita stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé félagsins á aðalfundi 21. mars og því að félaginu takist að afla áskrifta að nýju hlutafé fyrir a.m.k. 4.000 milljónir króna að meðtöldu því hlutafé sem kemur frá núverandi hluthöfum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.

„Félagið hyggst á næstum vikum halda áfram að ræða við fjárfesta úr hópi núverandi hluthafa og hefja  viðræður við aðra fjárfesta, með það að markmiði að afla frekari skuldbindinga um þátttöku í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu. Stefnt er að því að tilkynna um endanlegt umfang aukningarinnar og helstu skilmála samhliða boðun aðalfundar í lok þessa mánaðar auk frekari upplýsinga um skráningu á aðalmarkað Nasdaq Iceland,” segir í tilkynningunni.

„Gríðarlega ánægður“

„Ég er gríðarlega ánægður með þessa sterku stuðningsyfirlýsingu okkar stærstu hluthafa við félagið með áskriftarloforði að fjárhæð um 2.600 milljónum króna. Þátttaka okkar sterka hluthafahóps í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu skapar skilyrði til að ljúka þeirri hlutafjáraukningu sem félagið áformar,” segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, í tilkynningunni.

Birgir Jónsson, forstjóri Play.
Birgir Jónsson, forstjóri Play. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Eins og fram kom á afkomufundi okkar fyrr í febrúar eru skýr merki um bata í rekstrinum og er núverandi lausafjárstaða vel viðunandi, þrátt fyrir hraðan vöxt og ítrekuð ytri áföll í rekstrarumhverfinu.

PLAY hefur á að skipa frábærum hópi starfsfólks sem hefur staðið sig gríðarlega vel á undanförnum árum. Með enn betri fjármögnun hefur félagið  meiri styrk til að mæta óvæntum áföllum og getu til að grípa spennandi vaxtatækifæri. Ég vil þakka okkar stærstu hluthöfum okkar þá tiltrú sem þeir sýna félaginu eftir þessa fyrstu lotu og hlakka til að kynna reksturinn enn betur fyrir öðrum fjárfestum og markaðsaðilum. Framtíð PLAY er mjög björt og félagið er vel í stakk búið að vaxa og dafna á markaðinum,“ bætir hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert